Skapandi rými

Skapandi vinnurými úti á Granda

Ljósmyndastúdíó, myrkraherbergi, fundarherbergi og skrifborðsaðstaða — aðild sem sniðin er að þínum þörfum.

Skrifborðsaðstöður til leiguMyrkraherbergiFilmuframköllunSkrifborðsaðstöður til leigu

Rýmin

Fjögur sérhönnuð rými fyrir skapandi vinnu— veldu aðgang að því sem þú þarft

Ljósmyndastúdíó

Fullbúið ljósmyndastúdíó með bæði svörtum og hvítum bakgrunni, öllum búnaði, förðunar- og skiptiaðstöðu. Í stúdíói eru ljós, ljósastandar, reflektorar, litaðir bakgrunnar, sandpokar, softbox, regnhlífar, skilrúm með bæði svörtu og hvítu efni, sync snúra og fleira.

MEÐLIMIR 50.000 kr. 10 bókanir / mán. STÖK bókun 37.200 kr. Hver bókun er 3 klst.

Myrkraherbergi

Sérútbúið myrkraherbergi fyrir filmuljósmyndun með efnavinnslu og stækkara fyrir 35 mm, medium format og 4x5 stórformat filmur. Rýminu fylgir allt til alls m.a. framköllunarvökvar. Það eina sem þú þarft að koma með er pappír og filmur. Alrýmið heldur stöku sinnum myrkraherbergisnámskeið fyrir byrjendur. Fylgist með á samfélagsmiðlum.

MEÐLIMIR 40.000 kr. 10 bókanir / mán. STÖK bókun 31.000 kr. Hver bókun er 5 klst.

Prentun

Meðlimir Alrýmisins hafa aðgang að 112 cm stórmyndaprentara fyrir listprent, Canon PRO-4000, með UV-þolnu og endingargóðu bleki.

Verð miðast við notkun.

Fundarherbergi

Bókanlegt

Fundarherbergi fyrir allt að 12 manns með skjávarpa og háhraða neti. Hentar vel fyrir námskeið.

LEIGA 10.000 kr. / klst að lágmarki í 3 klst í senn.

Skrifborðsaðstaða

Mánaðargjald

Þitt eigið skrifborð í sameiginlegri vinnustofu. Aðgangur að hágæða prentaðstöðu, fundarherbergi, háhraða neti, kaffi og te. Aðgangur allan sólarhringinn.

MEÐLIMIR 50.000 kr. / mán.

Hvernig aðild virkar

Þú velur aðgang að þeim rýmum sem þú þarft — ekkert meira.

01

Veldu rými

Púslaðu saman áskrift að þeim rýmum sem henta þér. Þú getur byrjað með skrifborð og bætt við stúdíói síðar.

02

Bókaðu í gegn um vefinn

Meðlimir hafa aðgang allan sólahringinn. Meðlimir hafa ákveðin fjölda bókana í sérrými á mánuði og fara bókanir fram í gegnum kerfi Alrýmisins.

03

Mælaborð

Þú sérð dagatal fyrir þín rými, bókar pláss innan þíns mánaðarkvóta og getur afbókað með dagsfyrirvara til að fá plássið til baka. Allar þínar bókanir eru aðgengilegar á þínu persónulega mælaborði.

Nýir meðlimir eru stofnaðir af starfsfólki Alrýmisins. Hafðu samband og við sendum þér boð í tölvupósti eða fylltu út form fyrir biðlista hér að neðan

Innifalið

Fyrir alla meðlimi

Háhraða net
Kaffi og te
Bílastæði
Sólarhringsaðgangur

Umsókn

Alrýmið tekur nú við umsóknum í öll rými. Skráðu þig og við höfum samband.

Hvaða rými hefur þú áhuga á?

Valfrjálst — hjálpar okkur að forgangsraða þegar sæti losna.